Lamba fille er alltaf jafn gott. Hér er það látið marinerast í kryddlegi sem er búinn til úr ferskum kryddjurtum. Bragðgóð klassík sem slær svo sannarlega í gegn!
Það kom mér á óvart hversu góður grillaður ferskur aspas er. Það er svo ótrúlega einfalt að grilla þá og hann var fáranlega góður! Aspasinn í Kosti kemur alltaf ferskur með flugi beint frá New York sem maður finnur vel á bragðinu. Algjört lostæti sem passar svo vel með lamba fille-inu!
Kryddlögurinn verður betri ef notaðar eru ferskar kryddjurtir og er þessi uppskrift miðuð við það en hægt er að nota þurrkaðar ef þið viljið það frekar.
Lamba fille í kryddlegi:
- 1 msk rósmarín
- 1 msk timían
- 3 stk Hvítlaukusgeirar
- 1 tsk salt
- 1 tsk pipar
- 1,5 dl ólífu olía
- 1 kg lamba fille
Aðferð:
- Rósmarínið og timíanið er saxað létt.
- Hvítlaukurinn er saxaður gróflega.
- Setjið kryddjurtinar, hvítlaukinn, salt og pipar ásamt ólífu olíu í mortel og maukið blönduna saman.
- Setjið lamba fille í skál eða eldfast mót og hellið kryddleginum yfir.
- Látið marinerast í 30-60 mín.
- Kveikið á grillinu og stillið á háan hita.
- Þegar grillið er orðið heitt, grillið þið kjötið á fituröndinni í 5-7 mín og svo 3-4 mín á hinni hliðinni.
- Látið kjötið hvíla á disk með álpappír yfir í 10-15 mín áður en það er borið fram. Á meðan grillið þið aspasinn.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu hana á Instagram með #lindulostæti
Grillaður aspas:
- 8 aspas stangir
- ólífu olía
- salt og pipar
Aðferð:
- Takið harða endann af aspasnum með því að brjóta hann af.
- Penslið aspasinn með ólífu olíu og dreifið smá salt og pipar yfir.
- Setjið aspasinn á grillið og snúið mjög reglulega. Grillið í 10-15 mín eða þangað til hægt er að stinga gaffli auðveldlega inn í aspasinn.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Benediktsdóttir