Einföld hunangs-sítrus marineruð kjúklingaspjót sem öll fjölskyldan mun elska!
Einföld hunangs-sítrus marineruð kjúklingaspjót
- 4 kjúklingabringur
- 2 paprikur
- u.þ.b. 10 sveppir
- 3 msk soja sósa
- 2 msk hunang
- 2 msk bragðlítil olía
- safi úr 1 lime
- 2 hvítlauksgeirar
- 5-6 grillspjót
Aðferð:
- Setjið soja sósu, hunang, olíu, lime safann og pressaða hvítlauksgeira í stóra skál og blandið öllu vel saman.
- Skerið kjúklingabringurnar í u.þ.b. fjóra bita, setjið í skálina og hellið marineringunni yfir. Látð kjötið marinerast í minnst hálftíma en lengur ef möguleiki er.
- Kveikið á grillinu og stillið á meðal háan hita.
- Raðið kjúklingnum og grænmetinu til skiptis á grillspjótin.
- Grillið spjótin þangað til kjúklingurinn er eldaður í gegn (tími fer eftir stærð kjúklingabitanna), snúið þeim reglulega á grillinu svo þau eldist jafnt á öllum hliðum.
- Ég mæli með að bera spjótin fram með heimagerðri alioli sósu
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: