Linda Ben

Einstaklega ljúffeng súkkulaði kanillengja sem þú átt eftir að vilja baka aftur og aftur!

Recipe by
3 klst og 30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Súkkulaði kanillengja.

Einstaklega ljúffeng súkkulaði kanillengja sem þú átt heldur betur eftir að elska. Það kæmi mér ekki á óvart ef þessi kanillengja sé eitthvað sem þú munt vilja baka aftur og aftur, svo góð er hún!

Súkkulaði kanillengja

Súkkulaði kanillengja

Súkkulaði kanillengja

Súkkulaði kanillengja

Súkkulaði kanillengja

  • 7 g þurrger
  • 250 ml volg mjólk
  • ½ dl sykur
  • 80 g brætt smjör
  • 1 tsk salt
  • 1 egg
  • 470 g hveiti

Aðferð

  1. Byrjað er á að setja volga mjólk ásamt gerinu í litla skál og hrært smá til að þurrgerið blotni.
  2. Setjið sykur, smjör, salt og egg í stóra skál og hrærið saman.
  3. Bætið svo nánast öllu hveitinu út í, skiljið um það bil 50 g eftir, og hellið gerblöndunni líka ofan í stóru skálina. Hnoðið deigið saman þangað til allt hefur blandast vel. Deigið á að vera klístrað en ef það er ennþá mjög blautt setjið þá restina af hveitinu út í.
  4. Látið deigið hefast í 1 – 1 ½ klst eða þangað til deigið hefur tvöfaldast í stærð.

Fylling:

  • 120 g mjúkt smjör
  • 2 dl sykur
  • 1 msk kanill
  • 30 g súkkulaði, brætt
  1. Þegar deigið hefur hefað sig dreifið þið svolítið af hveiti á borðið, takið deigið úr skálinni og fletjið það út í um það bil 20×40 cm flöt.
  2. Blandið saman mjúku smjöri, sykri og kanil í skál, bræðið súkkulaðið og hellið því út í blönduna, þeytið vel saman. Smyrjið fyllingunni yfir allt deigið.
  3. Rúllið svo upp deiginu frá 40 cm endanum í lengju. Takið lenguna og brjótið hana saman þannig að endarnir snúi í sömu átt, vefjið rúllunni saman nokkra vafninga.
  4. Leggjið smjörpappír í kökuform sem er u.þ.b. 10×25 cm, leggjið svo kanillengjuna þar ofan í. Setjið viskastykki yfir og leyfið lengjunni að hefast aftur í 30 mín.
  5. Stillið ofninn á 170°C og undir og yfir hita.
  6. Setjið snúðana í ofninn og látið bakast í 35-45 mín eða þangað til lengjan er orðin fallega gullinbrún á litinn og nokkuð stíf í viðkomu sé ýtt á hana.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Súkkulaði kanillengja

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5