Tryllt góðar Eitt sett smákökur
Ef þið elskið djúsí smákökur sem eru stökkar að utan og mjúkar að innan með bráðnu súkkulaði og lakkrís, þá verðið þið að prófa þessar! 😍🍪
Eitt Sett súkkulaðið bráðnar dásamlega í deiginu og gefur smákökunum ómótstæðilega blöndu af mjúkri smáköku, súkkulaði og lakkrís. Þær eru stökkar á köntunum, mjúkar í miðjunni og erfitt að stoppa eftir bara eina.
Þetta eru smákökur sem henta jafnt með kaffibollanum, í veislur eða þegar mann langar einfaldlega að baka eitthvað sem slær alltaf í gegn. Ég lofa að þær hverfa hratt af kökudisknum!








Eitt sett smákökur
- 200 g mjúkt smjör
- 150 g púðursykur
- 100 g sykur
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 350 g hveiti
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 5 x 35 g Nóa Eitt Sett síríuslengja
Aðferð:
- Hrærið saman smjör og sykur þar til létt og mjúkt.
- Bætið eggjunum út í, einu í einu og hrærið vel á milli.
- Bætið vanilludropunum út í og hrærið.
- Blandið saman í aðra skál hveiti, matarsóda og salti, hellið svo öllu út í eggja/sykurblönduna og hrærið þar til samlagað.
- Skerið Eitt Sett plöturnar niður og bætið því út í deigið.
- Setjið deigið í plastfilmu og geymið í ísskáp í a.m.k. 1 klst í kæli.
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Mótið kúlur úr deiginu, u.þ.b. 1 msk eða 20-25 g hver kúla, raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu, bakið í 11-12 mín (endarnir byrjaðir að brúnast en miðjan ennþá mjúk).
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category:










