Fljótleg smáköku uppskrift, bragðgóðar kökur og æðislega fallegar! Margir þessar kökur undir nafninu mömmukökur.
Engifer smákökur fylltar með salt karamellu smjörkremi
- Engifer smákökudeig (uppskrift í bókinni minni Kökur)
- 250 g smjör
- 500 g flórsykur
- 1,5 dl sölt karamella
Aðferð:
- Fletjið deigið út, notið smá hveiti undir svo það festist ekki við borðið.
- Skerið út 10 cm hringi með smákökuformi, leggið kökurnar á ofnplötu með smjörpappír. Bakið samkvæmt leiðbeiningum á pakka í um það bil í 7-10 mín.
- Hrærið smjörið og bætið svo flórsykrinum út í, hrærið mjög vel saman.
- Bætið salt karamellunni út í og blandið mjög vel saman. Þegar kökurnar hafa kólnað leggiði þá helminginn af kökunum öfugt á borðið.
- Setjið kremið í sprautupoka með 2D stút, sprautið kreminu á öfugu kökurnar í rós og lokið kökunum með annari smáköku.
- Skreytið með bronslituðu matarglimmeri.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: