Jólalegur, mildur og bragðgóður kokteill sem er æðislegt að deila með vinum.
Það er líka hægt að útbúa þennan drykk í stærri stíl og gera þannig jólabollu.
- 6 cl Cointreau
- 3 cl lime safi
- ¼ niðurskorið rautt epli
- Sódavatn
- Rósmarín stöngull
Aðferð:
- Blandið öllum innihaldsefnum saman í fallegt glas, hrærið með kokteilskeið og skreytið með rósmarín stöngli.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: