Epla og kanil skyr drykkur með haustlegum blæ.
Þessi skyr drykkur er bragðgóður og hollur.
Epla og kanil skyr drykkur
- 200 g hreint skyr frá Örnu Mjólkurvörum
- ½ banani
- 2-3 döðlur
- 1 rautt epli
- 1 lúka möndlur
- ¼ tsk kanill
- Klakar
- Vatn
Aðferð:
- Setjið í blandara og blandið þar til orðið að drykk.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: