Rjómasveppa sósa:
- Ravioli
- 250 g sveppir
- 1 msk smjör
- 2 ferskir hvítlauksgeirar
- 1 piparostur
- 250 ml matreiðslurjómi
- 1 tsk soya sósa
- Salt og pipar
- Fersk basilíka
- Parmesan ostur
Aðferð:
- Eldið pastað eins og sagt er til um á pakkningunni.
- Skerið sveppina í sneiðar og steikið sveppina upp úr smjöri þangað til þeir verða mjúkir í gegn.
- Skerið hvítlaukinn niður og steikið hann létt með sveppunum.
- Hellið rjómanum út á.
- Rífið piparostinn með rifjárni og setjið út í sósuna.
- Látið sjóða í svolitla stund þangað til sósan byrjar að þykkna, ef ykkur finnst vanta smá kick í sósuna þá setjið þið smá soya sósu út á. Kryddið til með salti og pipar.
- Setjið pastað í fallega skál, hellið sósunni yfir, skreytið með ferskri basilíku og parmesan osti.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: