Þessi ferska ídýfa er alveg tryllt góð! Hún er ótrúlega djúsí þrátt fyrir að vera fersk en þar er fetaosturinn leynitrikkið.
Ferskt avocadó og fetaosts salsa:
- 2 dl smátt skornir tómatar
- 2 stór avocadó, skorin í bita
- 1/3 rauðlaukur, smátt skorinn
- 1 vorlaukur, smátt skorinn
- 1 dl ferkst kóríander, smátt skorið
- safi úr ½ sítrónu
- 1 krukka fetaostur
- Klípa af salti
Aðferð:
- Blandið öllu saman í skál og berið fram með snakki
Ef þú prófar þessa uppskrift, þá þætti mér svo vænt um að heyra hvernig smakkast! Skildu endilega eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Ykkar, Linda Ben
Þessi færsla er kostuð en það hefur ekki áhrif á frásögn mína.