Ferskt falafel salat með Hunangssinneps salatdressingu.
Þessi salatsósa er alveg ótrúlega bragðgóð og passar með hvernig salati sem er.
Ferskt falafel salat með hunangssinneps salatdressingu
Salat
- Salathaus
- 4-5 ferskar döðlur
- 200 g kirsuberjatómatar
- 200 g bláber
- 300 g falafel bollur
- Ristaðar furuhnetur
Hunangssinneps salatdressing
- ½ dl ólífu olía
- ½ dl Mialle hunangssinnep
- 1 dl grískt jógúrt
- 1 hvítlauksrif
- Safi úr ½ sítrónu
- Salt og pipar
Aðferð
- Bakið falafell bollurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
- Skolið salatið, þerrið það vel og raðið á disk.
- Skerið döðlurnar smátt niður og raðið á salatið ásamt kirsuberjatómötum, bláberjum, falafell bollum og ristuðum furuhnetum.
- Til að útbúa sósuna setjið öll innihaldsefnin saman ofan í flösku, rífið hvítlaukinn ofan í og hristið vel saman.
- Hellið vel af dressingunni yfir salatið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: