Linda Ben

Fiskibollupanna

Recipe by
30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Hnýfill | Servings: 4 manns

Fiskibollupanna

Þessi fiskibollupannan er einföld, fjölskylduvæn og full af klassískum bragðsamsetningum sem slá alltaf í gegn. Fiskibollurnar bakast með smælki, lauk og gulrótum þar til allt verður mjúkt, safaríkt og fullt af bragði. Smjörið bakast með kartöflunum og grænmetinu og gefur réttinum þessa dásamlegu heimilismatstilfinningu.

Súrar gúrkur og ferskt dill setja svo punktinn yfir i-ið og gefa ferskleika sem passar einstaklega vel með fiskibollunum. Ef þiið viljið þá er rosa gott að bera pönnuna fram með remúlaði. Þetta er svona matur sem minnir mann á íslenskan heimilismat á sinn allra besta hátt.

Ég notaði fiskibollur frá Hnýfill, sem gera réttinn einstaklega þægilegan þegar mann langar í fljótlegan kvöldmat sem allri fjölskyldunni finnst góður. Fiskibollurnar frá Hnýfill eru einstaklega mjúkar og bragðgóðar. Þær eru án mjólkur, eggja og gluteins sem gerir þær að einstaklega hentugum kost fyrir ofnæmispésana okkar líka.

Ég passa að eiga alltaf poka af fiskibollum inn í frysti hér heima því þetta er svo góður matur til að grípa í þegar tíminn er naumur.

Fiskibollupanna

Fiskibollupanna

Fiskibollupanna

Fiskibollupanna

Fiskibollupanna

Fiskibollupanna

Fiskibollupanna

Fiskibollupanna

  • 800 g fiskibollur frá Hnýfill
  • 500 g smælki kartöflur
  • U.þ.b. 50-100 g smjör
  • 2 gulrætur
  • 1 laukur
  • Súrar gúrkur
  • Dill
  • Remúlaði

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið smælkið í pönnu sem má fara inn í ofn (má líka nota eldfastmót eða stóran steypujárnspott) ásamt klípu af smjöri og bakið í 10 mín.
  3. Skerið lauk og gulrætur í sneiðar, mér finnst þægilegast að nota mandolín hér.
  4. Takið pönnuna út úr ofninum og setjið fiskibollurnar í pönnuna ásamt lauk, gulrótum og meira af smjöri. Bakið í 20 mín.
  5. Skerið súrar gúrkur í sneiðar og saxið niður dill. Dreifið yfir pönnuna þegar borið er fram. Berið fram með remúlaði.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Fiskibollupanna

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5