Linda Ben

Forrétta snittu bakki

Recipe by
15 mín

Forrétta snittu bakki er skemmtilegt og fallegt að hafa tilbúið fyrir gesti í matarboðinu eða veislunni þegar gestirnir mæta.

Það er eitthvað svo listrænt og gaman að raða saman í svona bakka. Það fyrsta sem maður þarf að gera er að finna hæfilega stóran bakka. Bakkinn sem ég notaði er úr Dimm og þú finnur linkinn á hann hér. Svo set ég fyrst niður lykil hráefnin og legg þannig beinagrindina af bakkanum sem er brauðið i þessu tilviki. Því næst koma skálarnar og osturinn. Á eftir því set ég stóru ávextina og síðast fara berin og hráskinka á tóm svæði á bakkanum til að gera meiri fyllingu. Það er fallegt að láta berin fara upp á önnur hráefni og jafnvel láta nokkur hráefni detta af bakkanum.

Forrétta snittu bakki

Forrétta snittu bakki

Forrétta snittu bakki

  • Snittubrauð
  • Grænt pestó
  • Hummus
  • Mygluostur
  • Brómber
  • Bláber
  • Kantílópu melóna
  • Ananas
  • Græn epli
  • Hráskinka

Aðferð:

  1. Skerið brauðið í sneiðar, ristið sneiðarnar (ég ristaði brauðið á grill pönnu til að fá svona fallegar rendur í það), raðið þeim á bakkann.
  2. Setjið hummusinn og pestóið í fallegar skálar og setjið á bakkann ásamt mygluostinum.
  3. Skerið kantílópu melónuna og eplin í sneiðar, ananasinn í bita og raðið á bakkann.
  4. Setjið bláberin, brómberin og hráskinkuna á bakkann þar sem vantar fyllingu á bakkann.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben svo ég sjái afraksturinn.

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Forrétta snittu bar

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5