Linda Ben

French toast með jarðaberjum og sítrónu

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Hér höfum við dásamlega ljúffengt french toast eða franskt eggjabrauð með jarðaberjum og sítrónu, alveg ótrúlega góður morgunmatur.

Það er upplagt að nota nokkura daga gamalt brauð til að gera french toast því það dregur vökvann svo vel í sig og skilar sér í extra djúsí eggjabrauði.

French toast með jarðaberjum og sítrónu

French toast með jarðaberjum og sítrónu

French toast með jarðaberjum og sítrónu

French toast með jarðaberjum og sítrónu

  • 2 egg
  • 2 dl mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
  • 1 tsk vanilludropar
  • ½ tsk kanill
  • 1 msk smjör eða steikingarolía
  • 4 brauðsneiðar
  • Jarðaber
  • Sítrónubörkur
  • 1 msk flórsykur

Aðferð:

  1. Setjið egg og mjólk í skál ásamt vanilludropum og kanill, hrærið öllu vel saman.
  2. Leggið eina brauðsneið í einu ofan í blönduna og leyfið henni að draga í sig vökvann. Á meðan hún er að drekka í sig vökvann, kveikið þá undir “non-stick” pönnu og stillið á meðal hita, setjið smjör eða olíu á pönnuna. Steikið brauðið á pönnunni í u.þ.b. 3-4 mín á hvorri hlið. Á meðan brauðið er á pönnunni setjið þá næstu brauðsneið ofan í eggjablönduna og leyfið henni að draga í sig vökvann.
  3. Skerið niður jarðaber og setjið ofan á steikta brauðið og rífið sítrónubörk yfir. Dreifið flórsykri yfir.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

French toast með jarðaberjum og sítrónu

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5