Um helgar elska ég að útbúa mér góðan og djúsí morgunmat. French toast er þá í miklu uppáhaldi hjá mér, en það er alveg rosalega einfalt að útbúa og mjög gott.
French Toast:
- 4 egg
- 1 bolli rjómi
- 1 tsk kanill
- salt
- pipar
- 6 meðalstórar brauðsneiðar
- Ávextir
- Hlynsíróp
Aðferð:
- Blandið saman eggjum, rjóma, kanil, salt og pipar.
- Hellið eggjahrærunni í eldfast mót hæfilega stórt fyrir 2 brauðsneiðar.
- Látið 2 brauðsneiðar liggja í eggjahrærunni í 15-30 sek á hverri hlið.
- Steikið svo brauðsneiðarnar á pönnu þangað til þær eru gullinbrúnar og snúið þeim við og steikið á hinni hliðinni.
- Látið næstu brauðsneiðar liggja í eggjahrærunni á meðan og endurtakið svo aðferðina fyrir þær.
Mér finnst best að setja mikið af ávöxtum ofan á brauðið og svolítið hlynsíróp yfir. Í þetta skiptið skar ég niður ferskjur og banana og dreifði bláberjum yfir.
Að mínu mati verður morgunmaturinn ekki mikið betri og því vona ég að þið prófið þetta.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: