Linda Ben

French Toast – uppáhalds morgunmaturinn

Recipe by
15 mín
Prep: 5 mín | Cook: 10 mín | Servings: 6 brauðsneiðar

Um helgar elska ég að útbúa mér góðan og djúsí morgunmat. French toast er þá í miklu uppáhaldi hjá mér, en það er alveg rosalega einfalt að útbúa og mjög gott.

_MG_3913 copy

French Toast:

  • 4 egg
  • 1 bolli rjómi
  • 1 tsk kanill
  • salt
  • pipar
  • 6 meðalstórar brauðsneiðar
  • Ávextir
  • Hlynsíróp

Aðferð:

  1. Blandið saman eggjum, rjóma, kanil, salt og pipar.
  2. Hellið eggjahrærunni í eldfast mót hæfilega stórt fyrir 2 brauðsneiðar.
  3. Látið 2 brauðsneiðar liggja í eggjahrærunni í 15-30 sek á hverri hlið.
  4. Steikið svo brauðsneiðarnar á pönnu þangað til þær eru gullinbrúnar og snúið þeim við og steikið á hinni hliðinni.
  5. Látið næstu brauðsneiðar liggja í eggjahrærunni á meðan og endurtakið svo aðferðina fyrir þær.

_MG_3924 copy

Mér finnst best að setja mikið af ávöxtum ofan á brauðið og svolítið hlynsíróp yfir. Í þetta skiptið skar ég niður ferskjur og banana og dreifði bláberjum yfir.

_MG_3932 copy

Að mínu mati verður morgunmaturinn ekki mikið betri og því vona ég að þið prófið þetta.

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5