Linda Ben

Frönsk eplakaka

Recipe by
1 klst
| Servings: 8 manns

Það er eitthvað svo notalegt við eplakökur. Ilmurinn af eplum og kanil sem fyllir eldhúsið á meðan kakan bakast er eiginlega hálf upplifunin 😍🍎

Þessi franska eplakaka er einföld, mjúk og einstaklega safarík. Mjúk vanillukaka umlykur þunnar eplasneiðarnar sem bakast fallega inn í kökuna og kanilsykurinn gefur henni þessa klassísku hlýju sem passar svo vel með eplunum ✨ Þú finnur vanillukökumixið mitt í bæði Hagkaup og Krónunni.

Mér finnst þessi kaka hafa svolítið „franskt kaffihúsavæb“ yfir sér. Hún er látlaus og falleg, án þess að vera yfirhlaðin kremum eða skrauti. Bara góð kaka þar sem hráefnin fá að njóta sín.

Sigtaður flórsykur yfir kökuna rétt áður en hún er borin fram er allt sem þarf. Hún er dásamleg með kaffibolla, síðdegistei eða örlitlum þeyttum rjóma ef maður vill gera aðeins meira úr henni.

Þetta er svona kaka sem minnir mann á að stundum eru einföldustu kökurnar þær allra bestu 🍎☕✨

Frönsk eplakaka

Frönsk eplakaka

Frönsk eplakaka  Frönsk eplakaka

Frönsk eplakaka

Frönsk eplakaka

Frönsk eplakaka

Frönsk eplakaka

  • 500 g Ljúffeng vanillukaka – þurrefnablanda Lindu Ben
  • 3 egg
  • 1 ½ dl bragðlítil olía eða brætt smjör
  • 1 dl vatn
  • 2 stór epli
  • Kanilsykur (2 msk kanill + 1 msk sykur)
  • 1-2 msk flórsykur

Aðferð:

  1. Byrjið á því að kveikja á ofninum og stilla á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið þurrefnablönduna í skál með eggjum, vatni og olíu/smjöri. Hrærið saman.
  3. Skerið eplin í þunnar sneiðar.
  4. Smyrjið 23 cm smelluform og setjið helminginn af kökudeiginu í formið.
  5. Dreifið eplasneiðunum yfir deigið og setjið svo vel af kanilsykrinum yfir. Dreifið því sem eftir er af deiginu yfir og bakið í 35-40 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn.
  6. Kælið kökuna og sigtið svo flórsykur yfir hana.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Frönsk eplakaka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5