Fylltar sætar kartöflur með rjómaosti, pistasíum og heitu hunangi
Silkimjúkur Philadelphia rjómaostur bráðnar ofan í heitu kartöflurnar og með stökkum pistasíuhnetum, ferskum kryddjurtum og örlitlu heitu hunangi verður til ótrúlega bragðgóð blanda af ekki bara sætu, saltu og fersku en einnig mjúku og krönsí. Sem sagt alveg ómótstæðileg blanda.
Ég bar þessar kartöflur fram með grilluðum úrbeinuðum kjúklingalærum og guacamole og það var algjör draumasamsetning. Þær passa líka einstaklega vel með grilluðum laxi, nautasteik, lambakjöti eða einfaldlega sem glæsilegt meðlæti á grillborðið. Þetta er uppskrift sem er jafn falleg og hún er góð og passar fullkomlega fyrir sumarkvöldin. ☀️💛





Fylltar sætar kartöflur með rjómaosti, pistasíum og heitu hunangi
- 2 sætar kartöflur
- Ólífuolía
- Salt
- 200 g Philadelphia original rjómaostur
- U.þ.b. 1 dl pistasíuhnetur
- Graslaukur
- Fersk mynta
- Heitt hunang
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
- Skerið sætu kartöflurnar langsum í helminga, smyrjið þær vel með ólífu olíu að innan og yfir hýðið. Leggið þær skornu hliðina niður á smjörpappírsklædda ofnplötu.
- Bakið kartöflurnar inn í ofni í 30-40 mín eða þar til þær eru mjúkar í gegn (tími fer eftir stærð).
- Saxið pistasíuhnetur, graslauk og ferska myntu.
- Setjið kartöflurnar á disk. Notið gaffal til að losa aðeins um kartöflukjötið svo rjómaosturinn bráðni fallega saman við heitu kartöfluna.
- Setjið svo u.þ.b. 2 msk af rjómaosti á hverja kartöflu.
- Dreifið söxuðum pistasíuhnetum, graslauk og myntu yfir kartöflurnar og toppið með heitu hunangi.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar










