Það kannast margir við Galliano Hot Shot og upplifa jafnvel smá nostalgía við tilhugsunina. Ég hafði hins vegar aldrei smakkað þennan drykk eða réttara sagt skot og varð rosalega hrifin þegar ég smakkaði. Ég mæli virkilega vel með því að prófa þetta ef þið hafið ekki nú þegar gert það!
Galliano Hot Shot Drykkur:
- 15 ml Galliano Vanilla
- 15 ml heitt espresso skot
- 15 ml þeyttur rjómi
Aðferð:
- Hellið fyrst líkjörnum í glasið.
- Notið svo teskeið til að hella kaffinu út í drykkinn og toppið með þeyttum rjóma
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: