Linda Ben

Geggjað góði hnetusmjörshummusinn

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Muna

Þessi uppskrift varð til þegar ég og strákurinn minn (9 ára) vorum í fríi heima. Við vorum eitthvað að græja í eldhúsinu eins og svo oft áður, þróa uppskriftir fyrir síðuna, m.a. baka brauð og eitthvað fleira. Mér datt í hug að gera hummus með brauðinu, en honum leist alls ekki á þá hugmynd, hann sagði að honum fyndist hummus vondur.

Við ræddum málið og ákváðum að prófa okkur áfram með hummus uppskriftir, markmiðið var að gera hummus sem honum fyndist góður.

Hann elskar allt djúsí svo við vildum hafa hann extra mjúkan og fluffý. Við maukuðum því kjúklingabaunirnar með vökvanum sem þær koma í, útkoman var rosa flöffý og mjúk. Hnetusmjör er í miklu uppáhaldi hjá honum svo við ákváðum að setja hnetusmjör í hummusinn. Við settum líka tahini-ið frá Muna út í hummusinn, eitthvað sem hefði ekki gert áður en ég smakkaði Muna tahini-ið en mér fannst tahini alltaf vont áður en ég smakkaði það frá Muna. Svo settum við nóg af ólífu olíu út í og smökkuðum okkur svo til með hunangi og salti.

Útkoman varð þannig að barnið kláraði hummusinn! Hann algjörlega elskaði þetta. Það er því öruggt að segja að við náðum markmiðinu okkar. Hann sagði að hummusinn væri geggjað góður og því heitir þessi uppskrift einfaldlega geggjað góði hnetusmjörshummusinn.

Geggjað góði hnetusmjörs hummusinn

 Geggjað góði hnetusmjörs hummusinn

Geggjað góði hnetusmjörs hummusinn

Geggjað góði hnetusmjörshummusinn

  • 1 krukka kjúklingabaunir (með vökvanum) frá Muna
  • 1 msk tahini frá Muna
  • 1 – 1 1/2 msk akasíu hunang (byrjið á að setja 1 msk, bætið við meira ef ykkur finnst vanta) frá Muna
  • 2 msk hnetusmjör frá Muna
  • 3 msk ólífu olía frá Muna
  • Salt
  • Salthnetur og kókosflögur (skraut, má sleppa)

Aðferð:

  1. Allt sett saman í blandara og maukað þar til silkimjúkt.
  2. Setjið í skál, bæti örlítið af ólífuolíu ofan á hummusinn og ef þið viljið þá getiði skreytt hann með salthnetum og kókosflögum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

Geggjað góði hnetusmjörs hummusinn

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5