Linda Ben

Grænmetislasagna með pestó

Recipe by
1 klst og 30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 8 manns

Grænmetislasagna með pestó.

Bragð- og matarmikið lasagna fullt af rifnum mozzarella osti sem gerir það einstaklega djúsí. Það er inniheldur mikið grænmeti og ekkert kjöt. Pestóið milli lagana gerir það bragðmeira og ótrúlega gott. Þetta verður þú að smakka!

Þetta er stór uppskrift og því fullkomið til að borða afgangana daginn eftir sem er ekki síðra þá.

grænmetislasagna með pestó

grænmetislasagna með pestó

Grænmetislasagna með pestó

  • 2 msk ólífu olía
  • 1 rauðlaukur
  • ½ grasker (Butternut squash)
  • 250 g sveppir
  • 2 gulrætur
  • 1 rauð paprika
  • 2 hvítlauksrif
  • 400 g rauðar nýrnabaunir
  • 1400 ml pastasósa
  • 1 msk ítölsk kryddblanda
  • Salt og pipar
  • U.þ.b. 12 lasagnablöð
  • 150 g grænt basil pestó
  • 400 g rifinn mozzarella frá Örnu Mjólkurvörum

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C og undir+yfir hita.
  2. Skerið rauðlaukinn niður og steikið ásamt olíu í djúpri pönnu. Skerið graskerið, sveppina, gulræturnar og paprikuna, bætið út á pönnuna og steikið.
  3. Rífið hvítlaukinn niður og bætið út á pönnuna ásamt nýrnabaunum.
  4. Bætið pastasósunni út á og kryddið með ítalskri kryddblöndu og salt&pipar.
  5. Leyfið sósunni að malla svolítið á pönnunni á meðal hita og hrærið reglulega í.
  6. Setjið sósu í botninn á stóru eldföstumóti (gott að miða við að skipta sósunni í 3 hluta) setjið pastablöð yfir, pestó yfir það og svo rifinn ost.
  7. Endurtakið skref 6 tvisvar sinnum.
  8. Leggið álpappír yfir eldfastamótið og bakið inn í ofni í u.þ.b. 45 mín. Takið álpappírinn af og leyfið ostinum að brúnast.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

 

grænmetislasagna með pestó

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5