Grænn spínat og mangó smoothie.
Ótrúlega góður og frískandi smoothie, fullur af góðri næringu.
Grænn spínat og mangó smoothie
- 1 stór lúka spínat
- 2 dl frosið mangó
- ½ banani
- 1 tsk möndlusmjör
- ½ msk hampfræ
- 2 msk grískt jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
- Vatn
Aðferð:
- Setjið allt saman í blandara, setjið vatn í blandarann svo það nái yfir innihaldsefnin. Blandið þar til silkimjúkur drykkur hefur myndast.
Category: