Linda Ben

Gratíneraður þorskur í bragðmikilli rjómasósu

Recipe by
30 mín
Prep: 10 mín | Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 3-4 manns

Gratíneraður þorskur í bragðmikilli rjómasósu með fullt af grænmeti.

Einfaldleikinn er í fyrirrúmi og það tekur gott sem enga stund að smella þessum rétti saman sem er eldaður í einu fati sem er mín allra uppáhalds eldunaraðferð. Allt uppvask og bras er í lágmarki en bragðið vantar sko ekki!

Það tók mig 10 mín að setja þennan rétt saman og ganga frá í eldhúsinu, svo tók það 20 mín að elda réttinn inn í ofni, sem sagt 30 mín í heildina. Akkúrat rétturinn sem manni vantar þegar maður hefur í nógu að snúast en vill samt ekki fórna hollum og bragðgóðum kvöldmat.

Gratíneraður þorskur í rjómasósu

Gratíneraður þorskur í rjómasósu

Gratíneraður þorskur í rjómasósu

Gratíneraður þorskur í rjómasósu

  • 700 g þorskur
  • 400 g forsoðnar kartöflur
  • 200 g brokkolí
  • 200 g sveppir
  • 250 ml rjómi frá Örnu mjólkurvörum
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 200 g rifinn ostur með hvítlauk
  • 1 msk grænmetiskryddblanda frá Nicolas Vahé
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir.
  2. Kryddið þorskinn með grænmetiskryddblöndu og salt&pipar.
  3. Skerið kartöflurnar í helming, skerið brokkolíið í bitastóra bita, sveppina í fjóra hluta hvern og raðið í eldfast mót.
  4. Setjið rjómann í skál og pressið hvítlauksgeirann út í, setjið svolítið af kryddi og salt&pipar í rjómann og setjið helminginn af rifna ostinum út í, hellið yfir grænmetið í eldfasta mótinu.
  5. Leggið þorskinn yfir og raðið restinni af ostinum yfir. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 20 mín eða þar til þorskurinn er eldaður í gegn.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Gratíneraður þorskur í rjómasósu

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5