Maðurinn minn gaf mér svo skemmtilega matreiðslubók í jólagjöf. Bókin heitir Rosa’s Thai Cafe, the cookbook en í henni er að finna allskonar girnilegar asískar uppskriftir. Ég ákvað að prófa um daginn nautakjöts salat uppskriftina en hún er ein af mörgum uppskriftunum sem ég verð að prófa í þessari bók.
Salatið var æðislega gott, ferskt og létt en samt svo mettandi og bragðgott.
Salat innihald:
- 500 g Nautalundir eða annað nautakjöt
- 1 laukur
- 1/2 gúrka
- 12 kiruberja tómatar
- 200 g salat
Aðferð:
- Hitið vel grillpönnu og dreyfið svolítið olíu yfir pönnuna.
- Þurrkið allan vökva af kjötinu og skerið það í 2,5 cm þykkar sneiðar.
- Steikið á miðlungs háum hita í um það bil 2 mín á hvorri hlið eða þangað til það er eldað að þínum smekk.
- Skerið í þunnar sneiðar.
- Útbúið dressingu, sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan.
- Dreyfið salatinu á stórann disk.
- Skerið gúrku í þunnar sneiðar og dreyfið yfir salatið ásamt tómötunum.
- Hellið dressingunni yfir salatið, sjá neðar.
Dressing innihald:
- 10 litlir hvítlauksgeirar
- 1 lítill rauður chilli
- 3 mak nam plan (asísk fiskisósa)
- 3 msk lime safi
- 2 msk chilli sósa
- 1 msk sykur
Aðferð:
- Maukuð hvítlauk og chilli í matvinnsluvél eða Nutribullet glasi.
- Setjið maukið í skál og bætið öllum hinum innihaldsefnunum og hrærið vel saman.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben.
Category: