Þessi uppskrift af grilluðum kjúklingabringum er mjög einföld og fljótleg. Bringurnar verða ótrúlega fallegar og gaman að bera fram.
Þið þurfið aðeins 6 innihaldsefni til þess að töfra fram þessar kjúklingabringur og þegar ég segi að það tekur 20 mín að elda þá er það mjög gróflega áætlað.
Sætu kartöflurnar útbúið þið með því að skera niður 2-3 meðalstórar sætar kartöflur í teninga, setja í eldfast mót og setja ½ krukku af feta osti með, hæra saman og baka inn í ofni við 200ºC í 30 mín.
Grillaðar kjúklingabringur með bræddum mosarella, tómat og basil
- 4 kjúklingabringur
- Kjúklingakrydd að eigin vali
- Mosarella rúlla
- 2 tómatar
- Stórt basil búnt
Aðferð:
- (Val) Útbúið kartöflur, sjá leiðbeiningar hér fyrir ofan
- Kveikið á grillinu, stillið á meðal hita.
- Kryddið kjúklingabringurnar vel með kjúklingakryddi.
- Leggið bringurnar á grillið og grillið í um það bil 5 mín á hvorri hlið.
- Á meðan bringurnar eru á grillinu, skerið mosarella ostinn í 1 cm þykkar sneiðar og tómatana líka.
- Þegar bringurnar eru að verða tilbúnar, leggið ostinn ofan á bringurnar og tómatana ofan á ostinn. Lokið grillinu og látið ostinn bráðna. Takið bringurnar af grillinu þegar þær eru tilbúnar.
- Saxið basil gróft niður og setjið vel yfir hverja bringu.
- Setjið hvítlaukssósuna í fallega skál og berið fram.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Þessi færsla er unnin í samstarfi við E.Finnsson.