Grillaðir Hamborgarar í hunangs og hvítlauks rub, uppskrift:
- 4 hamborgar
- 4 hamborgarabrauð
- Honey Garlic hamborgarakrydd
- Mexíkóostur
- Hamborgarasósa
- Salat
- Tómatur
- Paprika
- Gúrka
- Steiktir sveppir, sjá uppskrift hér fyrir neðan.
Steiktir sveppir, uppskrift:
- 2 msk ólífu olía
- 1/2 rauðlaukur, smátt saxaður
- 8 meðalstórir hvítir sveppir, skornir í sneiðar
- 1 msk Worcestershire sósa
Aðferð:
- Hitið ólífu olíuna á pönnu á miðlungs hita.
- Skerið laukinn og steikið hann í um það bil 2 mín.
- Skerið sveppina og setjið þá út á pönnuna, steikið þá í um það bil 2 mín.
- Bætið Worcestershire sósunni út á og steikið þangað til grænmetið er full eldað.
Hamborgarar, aðferð:
- Stillið grillið á miðlungs hita
- Kryddið hamborgarana vel með Honey garlic rub.
- Skerið mexíkóostinn í þunnar sneiðar
- Grillið hamborgarana á annari hlið þangað til blóðsafi kemur upp, snúið þeim þá við, setjið mexókóostinn á hamborgarana og leyfið honum að bráðna svolítið.
- Grillið brauðin í 1 mín á hvorri hlið
- Smyrjið brauðin með hamborgarasósu og raðið grænmeti á.
- Setjið hamborgarana á ásamt steikti sveppunum, lokið og njótið!
Ykkar, Linda Benediktsdóttir
Öll hráefni í þessa uppskrift fást í Kosti
Category: