Hér er þessi bragðgóða bleikja er borin fram með steiktu zucchini, grænkáli og granateplakjörnum.
Grilluð bleikja í bragðmiklu sítrónu raspi, uppskrift:
- 6 bleikju flök, beinhreinsuð
- 1 msk hunang
- 1 msk dijon sinnep
- 1 bolli muldir brauðteningar frá Fresh Gourmet
- Börkur af 1 sítrónu
- 1 msk capers
Aðferð:
- Kveikið á grillinu og setjið bleikjuflökin á álpappir.
- Blandið saman 1 msk hunangi og 1 msk dijon sinnepi og penslið því á bleikjuna.
- Myljið brauðteninga með því að setja þá í poka og berjið þá með buffhamari. Setjið sítrónubörkinn út í og dreifið blöndunni yfir fiskinn.
- Grillið þangað til fiskurinn er tilbúinn, en tíminn svolítið mismunandi eftir því hversu þykk flökin eru.
- Á meðan fiskurinn er á grillinu, steikið þá capersið með því að hita litla pönnu vel, setja olíu á pönnuna þannig að hún þekji botninn á pönnunni. Setjið 1 msk af capers á eldhúspappír og þurrkið það. Þegar olían er orðin heit þá setjiði capersið út á og steikið þangað til það poppast svolítið. Takið þá capersið upp úr olíunni og á eldhúspappír til að taka það mesta af olíunni. Setjið svo capersið á fiskinn.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni.
Njótið vel!
Ykkar Linda Benediktsdóttir
Category:
Ég prófaði þennan í kvöld og hann var delish ??
Frábært að heyra, takk fyrir að deila því með okkur Klara :*