Linda Ben

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítlaukssmjöri

Recipe by
1 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Everdure

Það er eitthvað alveg sérstakt við sumarkvöld þar sem grillið fær að vera í aðalhlutverki. Mér finnst fátt jafnast á við að grilla góða steik, leggja fallega á borð og njóta með fjölskyldu og vinum.

Ég hef verið að nota Everdure Furnace grillið undanfarið og er virkilega hrifin af því. Það hitnar hratt, heldur hitanum einstaklega vel og þrír sjálfstæðir brennarar gera það auðvelt að stjórna hitanum eftir því hvað er verið að elda. Ég elska líka hvað grillið er stórt, sérstaklega þegar margt er á matseðlinum í einu.

Mér finnst líka skipta miklu máli að hlutirnir séu fallegir. Everdure grillin eru hönnuð með það í huga að sameina fallega hönnun og framúrskarandi virkni, þannig að grillið verður jafn mikið hluti af útirýminu og matarupplifuninni sjálfri.

Mér finnst líka æðislegt að geta skipt út grillgrindinni fyrir steikarplötuna þegar ég grilla grænmeti eins og aspas, það gerir eldunina bæði einfaldari og útkoman verður frábær.

Hér getur þú skoðað Everdure grillin nánar.

Ef þið eruð að leita að grillrétti sem slær alltaf í gegn, þá mæli ég með þessari safaríku nautasteik með heimagerðu hvítlaukssmjöri. Þetta er klassískur sumarréttur sem klikkar aldrei.

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítllaukssmjöri

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítllaukssmjöri

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítllaukssmjöri

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítllaukssmjöri

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítllaukssmjöri

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítllaukssmjöri

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítllaukssmjöri

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítllaukssmjöri

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítllaukssmjöri

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítlaukssmjöri

  • Rib eye með beini – eða önnur góð nautasteik
  • Salt og pipar
  • Hvítlaukssmjör
  • Grillaður aspas
  • Grillaðar kartöflur

Hvítlaukssmjör

  • 200 g mjúkt smjör
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk ferst timjan (eða 1 tsk þurrkað)
  • 1 msk gróft sinnep
  • Salt

Grillaður aspas

  • Aspas
  • Olía
  • Salt

Grillaðar kartöflur

  • Stórar kartöflur
  • Salt

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja kartöflurnar í álpappír og grillið þær þar til mjúkar í gegn. Gott að gera ráð fyrir amk klukkutíma í það en tími fer algjörlega eftir stærð og gerð.
  2. Útbúið hvítlaukssmjörið með því að setja það í skál, rífið hvítlauksrifin út á, saxið timjanið og setjið í skálina ásamt sinnepinu og saltinu. Hrærið saman. Setjið smjörið í plastfilmu og rúllið upp. Setjið í kæli.
  3. Kveikið á grillinu, piprið steikina og grillið það fyrst á báðum hliðum. Lækkið á grillinu og setjið kjöthitamæli í það. Grillið þar til kjarnhiti nær 50°C, snúið steikinni reglulega. Látið steikina jafna sig við stofuhita í u.þ.b. 10 mín áður en þið skerið steikina. Saltið steikina og berið fram með hvítlaukssmjörinu, aspasnum og kartöflunum.
  4. Setjið Everdure grillplötuna á grillið. Setjið olíu og aspas á grillið og grillið í u.þ.b. 5 mín.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Grilluð nautasteik með geggjuðu hvítllaukssmjöri

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5