Linda Ben

Guðdómlega franska súkkulaðikakan hennar mömmu

Recipe by
1 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus

Guðdómlega franska súkkulaðikakan hennar mömmu.

Þessa uppskrift gróf mamma upp úr gamla uppskriftasafninu sínu um daginn. Þessa köku gerði hún fyrir allskonar tilefni þegar ég hef örugglega verið eitthvað í kringum 12-15 ára gömul en við vorum með algjört æði fyrir þessari köku.

Mamma rifjaði svo þessa köku upp fyrir okkur um daginn þegar hún bauð okkur í mat og var þá búin að baka hana. Hún var svo rosalega góð að ég einfaldlega varð að fá uppskriftina hjá mömmu og deila henni með ykkur.

Ég ákvað að nota suðusúkkulaðið með karamellu kurlinu og sjávarsalti þegar ég bakaði hana og það kom alveg svakalega vel út og verð ég að mæla sérstaklega með því, en klassíska útgáfan er að sjálfsögðu með hreina Nóa suðusúkkulaðinu.

Guðdómlega franska súkkulaðikakan hennar mömmu

Guðdómlega franska súkkulaðikakan hennar mömmu

Guðdómlega franska súkkulaðikakan hennar mömmu

Guðdómlega franska súkkulaðikakan hennar mömmu

  • 200 g sykur
  • 4 egg
  • 200 g suðusúkkulaði með karamellu og salti
  • 200 g smjör
  • 100 g hveiti

Krem

  • 200 g suðusúkkulaði með karamellu og salti
  • 70 g smjör
  • 70 g síróp

Skraut

  • 250 g jarðaber

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
  2. Þeytið egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós.
  3. Bræðið smjör í potti á vægum hita, slökkvið undir og setjið súkkulaðið út í, hrærið þar til bráðnað og samlagað. Bætið síðan súkkulaðibráðinni út í eggjablönduna varlega í mjórri bunu á meðan verið er að hræra rólega.
  4. Bætið hveitinu út í og hrærið varlega.
  5. Smyrjið 23 cm form og hellið deiginu í formið, bakið í u.þ.b. 30-40 mín eða þar til endarnir eru orðnir stífir en miðjan ennþá svolítið mjúk.
  6. Útbúið kremið með því að setja smjör og síróp í pott og bræða á vægum hita. Slökkvið undir og setjið svo súkkulaðið út í, hrærið þar til bráðnað.
  7. Hellið kreminu yfir kökuna, skerið jarðaberin niður í 4 hluta og setjið yfir kökuna.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Guðdómlega franska súkkulaðikakan hennar mömmu

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5