Lúxus hamborgarasósa.
Þessi hamborgarasósa er einstaklega góð og ég smelli alltaf í hana þegar mig langar í virkilega bragðgóðan grillaðan hamborgara.
Lúxus hamborgarasósa uppskrift
- 4 msk majónes
- 3-4 tsk Maille hunangssinnep
- 2 msk tómatsósa
- 50 g súrar gúrkur, smátt saxaðar
- ½ tsk hvítlauksduft
- ½ tsk paprikukrydd
- 1-2 tsk hot sauce
- Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Setjið öll innihaldsefni saman í skál og blandið saman.
- Berið fram með uppáhalds grilluðu hamborgurunum.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: