Linda Ben

Hamborgarhryggur með ljúffengri sósu og meðlæti

Recipe by
3 klst
Cook: Unnið í samstarfi við SS

Hamborgarhryggur með ljúffengri sósu og meðlæti.

Þessi klassíska jólamáltíð sem við ættum flest öll að kannast við og elska.

Hamborgarhryggurinn frá SS er einstaklega ljúffengur. Hér er hann eldaður með gljáa og borinn fram með brúnuðum kartöflum, ljúffengri hamborgarhryggjasósu, bökuðum gulrótum, waldorf salati, rauðkáli og gulum baunum.

Hamborgarhryggur með ljúffengri sósu og meðlæti

Hamborgarhryggur með ljúffengri sósu og meðlæti

Hamborgarhryggur með ljúffengri sósu og meðlæti

Hamborgarhryggur með ljúffengri sósu og meðlæti

Hamborgarhryggur með ljúffengri sósu og meðlæti

Hamborgarhryggur með ljúffengri sósu og meðlæti

  • Hamborgarhryggur með beini frá SS
  • 100 g púðursykur
  • 2 msk Dijon Sinnep
  • 1 msk hunang
  • ½ egg

 Aðferð:

  • Hægt er að elda hamborgarhrygginn með tvennskonar hætti, annað hvort í steikarpotti inn í ofni, eða í eldföstumóti (ekki með loki).
  • Ef notaður er steikarpottur: Kveikið á ofninum og stillið á 120°C og undir+yfir hita. Setjið steikina ofan í pottinn og hellið 1 líter af vatni ofan í pottinn. Setjið lok á pottinn og bakið inn í ofni í 2 klukkutíma og 15 mín.
  • Ef notað er eldfastmót: Kveikið á ofninum og stillið á 150°C. Setjið hrygginn ofan í mótið og bætið 1 liter af vatni ofan í mótið, eldið í 70 mín per. kg.
  • Hellið soðinu af kjötinu og setjið það í pott.
  • Hrærið saman púðursykur, Dijon-sinnep, hunangi og eggi (hrærið eggið saman í bolla og notið aðeins helminginn af egginu). Setjið hamborgarhrygginn á fallegt fat sem má fara inn í ofn og penslið hrygginn með blöndunni, bakið hrygginn í u.þ.b. 15 mín eða þar til kjarnhiti steikarinnar mælist 68°C (tími fer eftir stærð steikarinnar).

Bakaðar gulrætur

  • 500 g gulrætur
  • 2-3 msk ólífu olía
  • 1-2 msk púðursykur
  • Salt

Aðferð:

  1. Hreinsið gulræturnar og skerið þær í helminga langsum, raðið í eldfast mót.
  2. Hellið olíu yfir gulræturnar og dreifið púðursykri og örlitlu salti yfir.
  3. Bakið inn í ofni við 200°C Í 20 mín.

Brúnaðar kartöflur

  • 1 kg forsoðnar kartöflur
  • 1 ½ dl sykur
  • 75 g smjör

Aðferð:

  1. Setjið sykur á pönnu og hitið á vægum hita þar til sykurinn er nánast allur bráðnaður (passið að sykurinn brenni ekki, hrærið varlega í með sleif)
  2. Skerið smjörið í þrjá bita. Þegar sykurinn er nánast allur bráðnaður og ykkur finnst hann vera alveg við það að byrja brenna, setjið þá 1/3 af smjörinu út í og hrærið saman við, setjið svo næsta smjörbita út í og hrærið saman við og svo næsta.
  3. Setjið kartöflurnar út á pönnuna (gerið það varlega og passið að karamellan slettist ekki) og veltið þeim upp úr karamellunni þar til kartöflurnar eru alveg húðaðar.
  4. Setjið í fallegt fat eða á fatið með hamborgarhryggnum.

Hamborgarhryggjarsósa

  • 200 ml af soðinu sem kemur af hryggnum
  • 500 ml rjómi
  • 2 msk koníak
  • 1 stk svínakraftur
  • Salt og pipar
  • ½ tsk dijon sinnep
  • U.þ.b. 1 msk maisenamjöl
  • sósulitur
  • 30 g smjör

Aðferð:

  1. Setjið soðið, rjóma, koníak saman í pott og sjóðið.
  2. Bætið út í svínakrafti, salt og pipar og dijon sinnepi og hrærið saman við, leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur.
  3. Bætið út í maisenamjölinu og sósulit þar til þið eruð ánægð með þykktina og litinn á sósunni.
  4. Skerið smjörið í bita og bætið út í sósuna og hrærið þar til bráðnað saman við.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Hamborgarhryggur með ljúffengri sósu og meðlæti

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5