Þessar dásamlegu hátíðarbeyglur eru svo ótrúlega góðar og það besta er hvað þær eru hollar og einfalt að útbúa þær! 😍🎄 Mjúkar og ljúffengar beyglur með yndislegu bragði af bökuðum eplum og kanil, fullkomnar í notalegan morgunmat eða á jólabrunchborðið.
Ég nota hátíðarútgáfuna af grísku jógúrtinni frá Örnu Mjólkurvörum með bökuðum eplum og kanil, sem gefur beyglunum dásamlegt bragð og gerir þær einstaklega próteinríkar mjúkar og góðar. Það þarf ekkert ger og enga hefun, heldur er hráefnunum einfaldlega blandað saman, beyglurnar mótaðar og þeim skellt í ofninn!
Ég bæti líka rúsínum í deigið sem passa svo vel með epla- og kanilbragðinu, en þeim má auðvitað sleppa.
Beyglurnar eru alveg dásamlegar nýbakaðar með smjöri eða rjómaosti og góðum kaffibolla. Fullkomin leið til að koma sér í jólaskapið strax í morgunsárið!




Hátíðar grískt jógúrt beyglur
- 400 g hveiti
- 4 tsk lyftiduft
- 1 tsk salt
- 540 g Arna grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum – hátíðar útgáfa með bökuðum eplum og kanil
- 1 dl rúsínur (má sleppa)
- 1 tsk kanill
- 1 egg (til að pensla á beyglur)
- Hafrar (til að setja ofan á beyglur, má sleppa eða skipta út fyrir annað)
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfirhita.
- Setjið hveiti, lyftiduft, kanil og salt í skál, hrærið saman.
- Setjið gríska jógúrtið út í og blandið saman. Ef deigið er mjög blautt þá megiði setja örlítið meira af hveiti. Blandið rúsínunum saman við.
- Skiptið deiginu í 8 jafna hluta, rúllið hverjum hluta í kúlu, gerið gat í miðjuna og togið deigið út svo það verði í laginu eins og beygla. Leggið á smjörpappírsklædda ofnplötu, 4 beyglur á hverja plötu þar sem þær stækka mikið í ofninum.
- Hrærið saman egg í skál og penslið á beyglurnar, dreifið höffrum yfir.
- Bakið í 22 – 25 mín eða þar til þær eru orðnar gullibrúnar.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar








