Linda Ben

Heimabakað hvítlauksbrauð

Heimabakað hvítlauksbrauð

heimabakað hvítlauksbrauð einfalt og gott

heimabakað hvítlauksbrauð einfalt og gott

heimabakað hvítlauksbrauð einfalt og gott

heimabakað hvítlauksbrauð einfalt og gott

Heimabakað hvítlauksbrauð

  • 300 g hveiti
  • 1 ½ tsk ger
  • 1 tsk sykur
  • ¼ tsk salt
  • 2 ½ dl volgt vatn
  • 70 g smjör, mjúkt
  • 3 hvítlauksgeirar
  • u.þ.b. 1 dl fersk steinselja
  • 230 g Rifinn mozzarella með hvítlauks kryddosti
  • Gróft sjávarsalt
  • Þurrkað chili krydd

Aðferð:

  1. Setjið hveiti, ger, sykur og salt saman í skál, bætið hveitinu út í og blandið saman. Hellið vatninu út í og hnoðið deigið svolítið. Deigið á að mynda fallega kúlu en ennþá vera svolítið klístrað.
  2. Leggið hreint viskastykki yfir og látið deigið hefast í u.þ.b. 2 klst við stofuhita.
  3. Kveikið á ofninum, stillið á 220°C og undir hita.
  4. Setjið mjúkt smjör í skál, rífið hvæitlaukinn út í skálina og skerið steinseljuna smátt niður og blandið öllu saman.
  5. Skiptið deiginu upp í tvær kúlur og fletjið þær út.
  6. Smyrjið deigin með hvítlaukssmjörinu og dreifið rifna ostinum yfir.
  7. Bakið brauðin (eitt í einu) í u.þ.b. 10 mín eða þar til osturinn er orðin gullinbrúnn.
  8. Deifið örlítið af sjávarsalti og chili yfir brauðin.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

 

heimabakað hvítlauksbrauð einfalt og gott

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5