Á föstudögum elskum við fjölskyldan að fá okkur heimagerða pizzu eins og svo margar aðrar íslenskar fjölskyldur. Það er eins og þetta sé eitthvað sér íslensk.
Það er auðveldara en margir halda að útbúa pizzasósu frá grunni. Þessi sósa er bragðmikil og æðislega góð!
Innihald:
- 4 meðal stórir tómatar
- 1 shallot laukur
- 2 hvítlauksgeirar
- 1 dós tómatpúrra
- búnt ferskt oregano
- salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Tómatarnir eru settir í blandara og maukaðir.
- Á pönnu eru laukarnir steiktir upp út ólífu olíu. Þegar laukarnir eru byrjaðir að verða svolítið gegnsæjir er tómötunum og tómatpúrrunni bætt út á pönnuna.
- Sósan er svo krydduð með fersku oregano, salt og pipar eftir smekk.
- Sósan er látin sjóða í 15 mín og þá er hún tilbúin.
Á pizzubotnana setti ég svo sósuna fyrst, svo rifinn pizzaost og áleggin ofan á hann. Í þetta skiptið setti ég:
- Pepperóní
- Skinku, skorna í teninga
- Portobello sveppi, skorna í teninga
- Grænar ólífur
- Ferskan ananas
- Rjómaost
- þurrkaðar chilli flögur
Ég mæli með því að þið leyfið hugmyndafluginu að ráða þegar kemur að áleggi á pizzu og setjið það sem ykkur finnst gott.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: