Heimagerðir jarðaberja íspinnar sem krakkarnir elska.
Það er ótrúlega einfalt að smella í þessa jarðaberja íspinna sem eru úr ljúffengum rjómaís.
Maður einfaldlega þeytir eggjarauður og rjóma í sitthvorri skálinni, bræðir sykur með jarðaberjum í potti, bætir jarðaberja AB-mjólk í rjómann og blandar svo öllu varlega saman með sleikju. Svo setur maður ís “deigið” í íspinna form, en það er að sjálfsögðu hægt að setja hann líka í venjulegt form og gera ískúlur.
Heimagerðir jarðaberja íspinnar
- 3 eggjarauður
- 3 dl rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
- 2 dl jarðaberja AB-mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
- 1 ½ dl sykur
- 200 g fersk jarðaber
Aðferð:
- Skerið jarðaberin í bita, takið græna hlutann af. Setjið í pott ásamt sykrinum og hitið á vægum hita þar til sykurinn hefur bráðnað.
- Þeytið eggjarauðurnar mjög vel, alveg þangað til þær verða ljós gular, þykkar og deigið myndar borða þegar þeytarinn er tekinn upp úr og deigið lekur aftur ofan í skálina (borðarnir eru sjáanlegir í örfáar sek).
- Þeytið rjómann í annari skál, bætið AB-mjólkinni saman við varlega með sleikju. Bætið eggjarauðunum saman við með sleikju og síðan jarðaberin ásamt sykur sírópinu, blandið öllu varlega saman.
- Hellið ís “deiginu” í íspinna form eða annað form ef þið viljið gera ískúlur, frystið í a.m.k. sólahring áður en borða á ísinn.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben svo ég sjái afraksturinn.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: