Linda Ben

Heimagerðir jarðaberja íspinnar

Recipe by
24 klst
Prep: 30 mín | Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 12 íspinnar

Heimagerðir jarðaberja íspinnar sem krakkarnir elska.

Það er ótrúlega einfalt að smella í þessa jarðaberja íspinna sem eru úr ljúffengum rjómaís.

Maður einfaldlega þeytir eggjarauður og rjóma í sitthvorri skálinni, bræðir sykur með jarðaberjum í potti, bætir jarðaberja AB-mjólk í rjómann og blandar svo öllu varlega saman með sleikju. Svo setur maður ís “deigið” í íspinna form, en það er að sjálfsögðu hægt að setja hann líka í venjulegt form og gera ískúlur.

heimagerður jarðaberja ís

heimagerður jarðaberja ís

heimagerður jarðaberja ís

Heimagerðir jarðaberja íspinnar

  • 3 eggjarauður
  • 3 dl rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
  • 2 dl jarðaberja AB-mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
  • 1 ½ dl sykur
  • 200 g fersk jarðaber

Aðferð:

  1. Skerið jarðaberin í bita, takið græna hlutann af. Setjið í pott ásamt sykrinum og hitið á vægum hita þar til sykurinn hefur bráðnað.
  2. Þeytið eggjarauðurnar mjög vel, alveg þangað til þær verða ljós gular, þykkar og deigið myndar borða þegar þeytarinn er tekinn upp úr og deigið lekur aftur ofan í skálina (borðarnir eru sjáanlegir í örfáar sek).
  3. Þeytið rjómann í annari skál, bætið AB-mjólkinni saman við varlega með sleikju. Bætið eggjarauðunum saman við með sleikju og síðan jarðaberin ásamt sykur sírópinu, blandið öllu varlega saman.
  4. Hellið ís “deiginu” í íspinna form eða annað form ef þið viljið gera ískúlur, frystið í a.m.k. sólahring áður en borða á ísinn.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben svo ég sjái afraksturinn.

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

heimagerður jarðaberja ís

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5