Heimagerður hummus.
Hér er að finna afskaplega fljótlegan og einfaldan hummus sem er alveg dásamlegur á bragðið. Hann er silkimjúkur með svolítið afgerandi sítrónubragði, sem ég fýla. Léttur og ferskur.
Undanfarna mánuði hef ég verið gjörn á að fá mér hummus og Finn Crisp snakk í millimál á daginn, það er svo gott, hollt og seðjandi.
Heimagerður hummus
- 1 dós kjúklingabaunir (400 g)
- ½ dl vatn
- 2-3 msk ólífu olía
- Safi úr ½ sítrónu
- ¾ tsk cumin
- Salt og pipar eftir smekk
- 1 lítill hvítlauksgeiri
Aðferð
- Hellið vatninu af kjúklingabaununum og setjið í matvinnsluvél ásamt vatni, ólífu olíu, sítrónusafa, cumin, hvítlauksgeira, salti og pipar.
- Blandið saman þar til hummusinn er orðinn silki mjúkur.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: