Linda Ben

Heimagert granóla með ristuðum möndlum og kókosflögum

Recipe by
1 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Veru Örnudóttir

Hér höfum við einstaklega gott heimagert granóla með ristuðum möndlum og kókosflögum. Það er stökkt og bragðgott, inniheldur alveg fullt af hnetum og fræjum sem eru holl fyrir okkur. Það inniheldur aðeins einn dl hlynsíróp sem verður að teljast nokkuð lítið miðað við að mörg keypt granóla innihalda talsvert meiri sykur. Ristuðu kókosflögurnar og möndlurnar gera það nefninlega sætt og bragðgott frá náttúrunnar hendi.

Ég elska þetta granóla til dæmis með skyri. Ég hef verið að borða vegan skyrið frá Veru Örnudóttir undanfarið og líkar það mjög vel! Það er bragðgott, inniheldur lítinn viðbættan sykur og er próteinríkt. Það er að sjálfsögðu vegan eins og aðrar vörur frá Veru.

Heimagert múslí með ristuðum möndlum og kókosflögum

Heimagert múslí með ristuðum möndlum og kókosflögum

Heimagert múslí með ristuðum möndlum og kókosflögum

Heimagert múslí með ristuðum möndlum og kókosflögum

Heimagert granóla með ristuðum möndlum og kókosflögum

  • 500 g hafrar
  • 100 g möndlur
  • 80 g valhnetur
  • 50 g hörfræ
  • 100 g ristaðar kókosflögur
  • 1/4 tsk kanill
  • 100 g kókosolía
  • 1 dl hlynsíróp

Borið fram með

  • Bláberja hafra skyri frá Veru Örnudóttir
  • Bláberjum

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C.
  2. Saxið möndlurnar og valhneturnar gróft niður.
  3. Setjið hafra, söxuðu möndlurnar, valhneturnar, hörfræ og kókosflögur í skál, setjið örlítið af kanil yfir. Blandið öllu vel saman.
  4. Bræðið kókosolíuna og hellið yfir ásamt hlynsírópi, blandið öllu vel saman.
  5. Setjið smjörpappír á ofnskúffu og hellið blöndunni á smjörpappírinn. Takið stóran spaða og pressið blönnduna þétt niður. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 20 mín eða þar til blandan er byrjuð að verða gullinbrún á lit.
  6. Leyfið blöndunni að kólna alveg í ofnskúffunni að stofuhita. Takið svo spaða og brjótið granólað létt í sundur og setjið í íllát.
  7. Granólað geymist í lokuðu ílláti í u.þ.b. 2-3 vikur.
  8. Ég mæli með að bera granólað fram með bláberja hafra skyri frá Veru Örnudóttir og ferskum bláberjum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

Heimagert múslí með ristuðum möndlum og kókosflögum

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5