Alveg dásamlega gott heimagert ólífumauk eða tapenade eins og margir þekkja það.
Tapenade er gott ofan á baguette með ljúfu rauðvínsglasi, en það er einnig hægt að bera það fram til dæmis með pasta eða góðri steik.
Það er svo einfalt að útbúa þetta, maðuur smellir bara öllum innihaldsefnum saman ofan í blandara og maukar svolítið, þá er það tilbúið.
Heimagert Tapenade – ólífumauk
- 400 g svartar ólífur
- 400 g grænar ólífur
- 2 hvítlauksgeirar
- 150 g sólþurkaðir tómatar
- 15 fersk basilíka
- 15 g fersk steinselja
- 3 msk ólífu olía
- Safi úr 1/2 sítrónu
- Salt
Aðferð:
- Setjið öll innihaldsefnin í blandara eða matvinnsluvél og maukið þar til gróft maukað.
- Berið fram til dæmis með snittubrauði.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: