Linda Ben

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Recipe by
15 mín

Ég er búin að bíða með að sýna ykkur þessa viral hugmynd þar til núna, því mér hreinlega fannst ekki ástæða til fyrr en smákökudeigin væru komin í verslanir! 😍🍪 Og nú eru þau loksins mætt í Krónuna!

Hugmyndin er svo ótrúlega einföld en alveg dásamlega góð og girnileg! Heit, nýbökuð smákaka sett beint ofan á ískaldan rjómaís. Ísinn byrjar að bráðna örlítið undan heitri smákökunni og saman verður þetta að einum besta og einfaldasta eftirrétti sem hægt er að hugsa sér!

Ég nota sykurpúðasmákökudeigið mitt í þessa uppskrift, en smákökurnar verða dásamlega mjúkar og seigar í miðjunni, með ljúffengum sykurpúðum, litríkum súkkulaðiperlum og súkkulaðibitum sem bráðna við baksturinn. Samsetningin af heitri, mjúkri smáköku og köldum ís er algjörlega ómótstæðileg!

Smákökudeigin mín eru komin í Krónuna í þremur dásamlegum tegundum: sykurpúðasmákökudeig, lakkrís- og karamellufudge-smákökudeig og mjúkt og seigt piparkökudeig. Deigin eru tilbúin til baksturs og það eina sem þið þurfið að gera er að móta smákökurnar og skella þeim í ofninn. Það gerist varla mikið einfaldara að töfra fram nýbakaðar, dásamlega góðar smákökur!

Þessi eftirréttur er fullkominn þegar ykkur langar í eitthvað extra gott, hvort sem það er fyrir kósýkvöld heima eða þegar þið fáið gesti í heimsókn. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að útbúa hann og ég lofa að hann á eftir að slá í gegn!

Ég mæli með að þið nælið ykkur í nokkra pakka af smákökudeigunum mínum næst þegar þið farið í Krónuna. Það er nefnilega fátt betra en að eiga svona góðgæti tilbúið í ísskápnum þegar smákökulöngunin kemur! ❤️

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

  • Sykurpúðasmákökudeig Lindu Ben
  • Rjómaís

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Skiptið deiginu í 12 hluta og rúllið því upp í kúlur.
  3. Raðið eins mörgum kúlum og þið viljið setja ofan á ísskálar á smjörpappírsklædda ofnplötu. Geymið restina inn í ísskáp eða bakið til að eiga tilbúnar.
  4. Bakið í 10-11 mín eða þar til endarnir eru byrjaðir að bakast í gegn en miðjan ennþá mjúk.
  5. Setjið rjómaís í skálar og setjið heita smáköku yfir ísinn, berið fram strax.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Heit sykurpúðasmákaka á rjómaís

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5