Linda Ben

Heitir hunangs laxabitar

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið i samstarfi við Samherja | Servings: 3 manns

Heitir hunangsgljáðir laxabitar

Þessir hunangsgljáðu laxabitar eru ótrúlega bragðgóðir og einfaldir í útbúningi. Laxinn er fyrst steiktur þar til hann fær fallega steikingarhúð og síðan látinn malla í dásamlegum hunangsgljáa með smjöri, hvítlauk, soja og örlitlu chilí. Útkoman er safaríkur lax með sætum, söltum og örlítið sterkum gljáa sem hjúpar hvern bita.

Ég nota Landlax í réttinn en hann er íslenskur lax úr landeldi frá Samherja. Í landeldi er fiskurinn alinn á landi þar sem hægt er að hafa góða stjórn á eldisaðstæðum hans. Samherji hefur framleitt fisk með þessum hætti í um tvo áratugi og allar eldisstöðvar fyrirtækisins eru með alþjóðlegar vottanir.

Mér finnst líka stór kostur við landeldi að fiskurinn er alinn í stýrðu umhverfi á landi í stað sjókvía. Það gefur góða stjórn á aðstæðum og gerir Landlax að frábæru vali fyrir þá sem vilja vita meira um uppruna fisksins og hvernig hann er alinn.

Fersk steinselja og sítróna setja svo punktinn yfir i-ið á þessum einfalda og bragðmikla laxarétti sem er tilvalinn bæði á virkum dögum og um helgar. Ég mæli með að sjóða hrísgrjón með þessum rétti, það passar ótrúlega vel með.

Heitir hunangs laxabitar

Heitir hunangs laxabitar

Heitir hunangs laxabitar

Heitir hunangs laxabitar

Heitir hunangsgljáðir laxabitar

  • U.þ.b. 500 g Landlax – ferskur fiskur með roði
  • ½ tsk salt
  • ½ tsk pipar
  • ½ tsk paprikukrydd
  • Fersk steinselja
  • Sítrónur

Hunangsgljái

  • 50 g smjör
  • 1 kúfuð msk hunang
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 3 msk sojasósa
  • ¼ tsk þurrkað chilí krydd

Aðferð:

  1. Þerrið laxinn með eldhúspappír og fjarlægið roðið. Skerið laxinn í bita.
  2. Kryddið laxinn með salti, pipar og paprikukryddi. Steikið á pönnu þar til falleg steikingarhúð hefur myndast á laxabitana en þeir ekki fulleldaðir í gegn. Takið af pönnunni og geymið.
  3. Bræðið smjörið á pönnunni og bætið hunangi út á pönnuna ásamt sojasósu, chilí og rífið hvítlauksgeirana út á. Leyfið öllu að malla þar til orðið að þykkum gljáa.
  4. Bætið laxabitunum aftur á pönnuna og veltið þeim upp úr gljáanum. Látið allt malla saman við vægan hita þar til laxinn er rétt eldaður í gegn og gljáinn hjúpar bitana vel.
  5. Saxið ferska steinselju yfir og berið fram með sítrónubátum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5