Linda Ben

Klassískt heitt súkkulaði með rjóma sem yljar og kemur þér í hátíðar gírinn

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 2-3 bollar

Það er fátt sem kemur mér í meira jólaskap en heitt súkkulaði með miklum rjóma.

Hvort sem það er eftir góðan og frískandi göngutúr með krakkana rennandi sér á sleða eða eftir rölt niður Skólavörðustíginn að skoða jólaskreytingarnar, þá jafnast ekkert á við að koma inn í hlýjuna heima og fá sér heitt súkkulaði og piparkökur.

Hér er að finna klassíska útgáfu af heitu súkkulaði sem mun koma þér vonandi í þitt allra besta jólaskap! ❤️

Heitt súkkulaði jóla kakó með rjóma

Heitt súkkulaði jóla kakó með rjóma

Heitt súkkulaði með rjóma:

  • 500 ml nýmjólk frá Örnu mjólkurvörum
  • 150 g dökkt súkkulaði
  • 2 msk sykur
  • Rjómi frá Örnu mjólkurvörum (magn fer eftir smekk)
  • Súkkulaði spænir
  • Kanilstöng (má sleppa)

Aðferð:

  1. Setjið mjólkina í pott ásamt sykrinum, hitið að suðu en látið ekki sjóða.
  2. Skerið súkkulaðið niður í bita, slökkvið á hitanum undir mjólkinni, bætið súkkulaðinu út í hrærið saman þar til allt hefur samlagast.
  3. Hellið í bolla eða glös, þeytið rjómann og bætið út á kakóið. Ef þið viljið þá getiði sett rjómann í sprautupoka með stjörnustút og sprautað rjómanum út á kakóið eins og ég gerði.
  4. Takið súkkulaði spænir og setjið yfir kakóið og skreytið með kanilstöng.

Heitt súkkulaði jóla kakó með rjóma

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5