Þessi pekanhnetu brownie er algjörlega himnesk! 😍🍫
Dásamlega djúsí og súkkulaðirík brownie með þunnri, stökkri skorpu, mjúkri og nánast karamellukenndri miðju og stökkum pekanhnetum sem gera hana alveg ómótstæðilega!
Ég nota Síríus suðusúkkulaði í kökuna sem gefur henni þetta dásamlega djúpa og góða súkkulaðibragð. Pekanhneturnar passa svo einstaklega vel með súkkulaðinu og gefa kökunni bæði ljúffengt bragð og skemmtilega áferð.
Það besta er hvað það er einfalt að útbúa þessa dásemd! Það þarf aðeins nokkur hráefni og útkoman er eins og af besta kaffihúsi. Kakan er dásamleg ein og sér en líka alveg geggjuð með vanilluís eða léttþeyttum rjóma.
Þetta er ein af þessum kökum sem maður fær sér einn bita af og langar strax í annan. Fullkomin í næsta kaffiboð, sem eftirréttur eða bara þegar ykkur langar í eitthvað extra gott!








Himnesk pekanhnetu brownie
- 200 g smjör
- 300 g sykur
- 300 g Síríus suðusúkkulaði
- 100 g hveiti
- 40 g kakó
- 4 egg
- 100 g pekanhnetur
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir- og yfirhita.
- Setjið smjör og suðusúkkulaði í pott og bræðið saman við vægan hita. Takið af hitanum og leyfið blöndunni að kólna aðeins.
- Þeytið egg og sykur saman þar til blandan er orðin létt og ljós.
- Hellið súkkulaðibráðinni varlega út í eggjablönduna á meðan hrærivélin gengur á lágri stillingu.
- Blandið hveiti, kakói og salti saman í skál.
- Bætið þurrefnunum út í súkkulaðiblönduna og hrærið varlega saman þar til allt hefur blandast.
- Klæðið 25 × 25 cm bökunarform með bökunarpappír og hellið deiginu í formið.
- Saxið pekanhneturnar gróft og dreifið jafnt yfir kökuna.
- Bakið í um 25 mínútur, eða þar til þunn, stökk skorpa hefur myndast á yfirborðinu og kantarnir eru bakaðir í gegn. Miðjan má enn vera örlítið mjúk.
- Látið kökuna kólna alveg áður en hún er skorin í bita.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












