Linda Ben

Hinberja vatnsdeigsbollur með vanillukremsrjóma

Recipe by
2 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Hinberja bolludags bollur með vanillukremsrjóma.

Skotheldar vatnsdeigsbollur fyrir bolludaginn fylltar með hindberjum, hindberjasultu og vanillukremsrjóma. Ótrúlega góðar!

Hinberja bolludags bollur með vanillukremsrjóma

Hinberja bolludags bollur með vanillukremsrjóma

Hinberja bolludags bollur með vanillukremsrjóma

Hinberja bolludags bollur með vanillukremsrjóma

  • Vatnsdeigsbollur
  • Hindberjasulta
  • Vanillukrem
  • 300 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
  • 400 g Hindber
  • Flórsykur

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa vanillukremið, sjá uppskrift her fyrir neðan.
  2. Gerið næst vatnsdeigsbollur, sjá uppskrift hér fyrir neðan.
  3. Þeytið rjómann og blandið honum saman við vanillukremið.
  4. Opnið vatnsdeigsbollurnar, setjið hinberjasultu í botninn, vanillukremsrjómann yfir og loks hindber. Lokið og sigtið flórsykri yfir.

Vatnsdeigsbollur

  • 125 g smjör
  • 1 msk sykur
  • 275 ml vatn
  • 170 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 3-4 egg

Aðferð:

  1. Kveiktu á ofninum og stilltu á 180°C og blástur.
  2. Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökktu svo undir pottinum.
  3. Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Láttu standa í 5 mín. Færðu deigið í hrærivél.
  4. Settu þrjú egg út í deigið, eitt og eitt í einu og hrærðu þau vel saman við deigið. Vegna þess að egg eru misttór eru mismunandi hversu mikið þú þarft af seinasta egginu. Áferðin á deiginu á að vera þannig að deigið lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum. Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna en ekki leka út og verða flatt. Settu seinasta eggið í litla skál og hrærðu það saman. Settu 1 msk af egginu í einu út í og hrærið vel á milli þangað til þú ert komin með rétta áferð á deigið.
  5. Settu smjörpappír á ofnplötu og settu deigið í sprautupoka eða matskeiðar til að útbúa bollurnar (2 msk ein bolla). Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum, gott að miða við um það bil 12 bollur á hverja plötu.
  6. Bollurnar eru bakaðar í 20-25 mín en ekki opna ofninn fyrr en allavega 20 mín eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og sérð hversu blaut hún er inní.

Vanillukrem:

  • 500 ml nýmjólk frá Örnu Mjólkurvörum
  • Fræin úr 1 vanillustöng
  • 1 egg
  • 1 eggjarauða
  • 100 g sykur
  • 30 g kornsterkja/maizena mjöl
  • 25 g smjör
  • ½ tsk salt

Aðferð:

  1. Byrjað er á því að útbúa pastry cream með því að setja mjólkina í pott ásamt vanillu fræjunum í pott og hitið hana að suðu en slökkvið um leið undir og þegar byrjar að sjóða.
  2. Setjið egg, eggjarauðu, kornsterkju og sykur í skál og hrærið saman. Hellið 1/3 af heitu mjólkinni út í skálina með hrærivélina í gangi. Þegar allt hefur blandast saman hellið þá eggjablöndunni aftur ofan í pottinn með restinni af mjólkinni. Kveikið aftur á hitanum undir pottinum og hrærið stanslaust í blöndunni þar til hún hefur þykknað mikið og aðeins breytt um lit. Slökkvið þá undir pottinum og hrærið smjörið og saltið saman við.
  3. Hellið blöndunni í eldfast mót sem passar í ísskáp og leggið plastfilmu yfir, kælið.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5