Hindberja bananabrauð (v).
Þetta hindberja bananabrauð er einstaklega mjúkt og ljúffengt. Það inniheldur engin egg og engar mjólkurafurðir sem gerir það einnig vegan.





Hindberja bananabrauð (v)
- 220 g hveiti
 - 1 tsk lyftiduft
 - 1 tsk matarsódi
 - Klípa af salti
 - 100 g sykur
 - 170 g hafra jógúrt að grískum hætti með hindberjum og sítrónu frá Veru Örnudóttur
 - 1/2 dl (50 g) fljótandi kókosolía
 - 3 meðal stórir vel þroskaðir bananar (+1 auka til að setja ofan á brauðið en má sleppa)
 - 1 dl hindber (ferskt eða frosin)
 
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
 - Stappið banana og setjið í skál ásamt sykri, hafra jógúrti, kókosolíu og blandið saman.
 - Bætið hveiti, lyftiduft, matarsóda og salt í skálina og blandið saman.
 - Setjið hindberin ofan í skálina og veltið varlega saman við.
 - Hellið deiginu í smjörpappírsklætt form sem er 11×25 cm eða sambærilega stórt.
 - Bakið í u.þ.b. 50-55 mín eða þar til brauðið er bakað í gegn.
 
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category: 







