Linda Ben

Hindberja Fizz áfengislaus kokteill

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes

Það þarf ekki endilega áfengi til að búa til fallegan og ljúffengan kokteil! 🥂🍓

Þessi Hindberja Fizz er einstaklega ferskur, léttur og sumarlegur með sætu hindberjamauki, freyðandi áfengislausu freyðivíni og örlitlum sítrónukeim. Hann er fallegur í glasi, fljótlegur að útbúa og hentar við öll tilefni þar sem þið viljið bjóða upp á ljúffengan drykk án áfengis.

Ég notaði Organic Pizzolato áfengislaust freyðivín, sem gefur drykknum skemmtilega freyðingu og ferskt bragð. Þetta er kokteill sem gleður bæði augað og bragðlaukana og passar fullkomlega í sumarveislur, brunch eða þegar mann langar einfaldlega að skála í einhverju góðu. ✨🍋

Hindberja Fizz áfengislaus kokteill

Hindberja Fizz áfengislaus kokteill

Hindberja Fizz áfengislaus kokteill

  • Organic Pizzolato áfengislaust freyðivín
  • Hindber (bæði notið í drykkinn og til að skreyta)
  • Sprite (má sleppa eða skipta út fyrir sódavatn)
  • Sítróna

Aðferð:

  1. Setjið hindber í blandara (geymið nokkur til að skreyta drykkinn með seinna) og setjið u.þ.b. 1 msk af hindberjamaukinu í hvert glas.
  2. Hellið u.þ.b. 30 ml af Sprite í hvert glas og fyllið svo upp með áfengislausu freyðivíni.
  3. Skreytið með sítrónusneið og ferskum hindberjum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Hindberja Fizz áfengislaus kokteill

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5