Linda Ben

Hindberja tiramisu

Recipe by
4 klst
Cook: Unnið í samstari við Örnu Mjókurvörur | Servings: 6-8 manns

Ef þú elskar tiramisu en vilt ferskari og sumarlegri útgáfu þá verður þú að prófa þetta hindberja tiramisu 😍✨

Lady finger kökurnar draga í sig sætsúran hindberjasafann og verða ótrúlega mjúkar og bragðgóðar, á meðan kremið er létt, silkimjúkt og með ferskum keim af hindberjum og sítrónu. Gríska jógúrtið með hindberja og sítrónubragði frá Örnu Mjólkurvörum gerir eftirréttinn extra ferskan og sumarlegan og passar fullkomlega með hindberjunum og sítrónuberkinum 🍋

Gríska jógúrtið með hindberjum og sítrónu frá Örnu er árstíðabundin vara sem þýðir að hún er aðeins til núna í sumar í takmarkan tíma.

Þetta er svona eftirréttur sem lítur út fyrir að hafa tekið mikla vinnu en er í raun ótrúlega einfaldur að gera. Fullkomið í saumaklúbbinn, sumarveisluna eða þegar mann langar í eitthvað léttara en samt decadent og ómótstæðilega gott ✨

Og svo er hann líka bara svo fallegur á borðinu með öllum fersku hindberjunum ofan á

Hindberja tiramisu

Hindberja tiramisu

Hindberja tiramisu Hindberja tiramisu

Hindberja tiramisu

Hindberja tiramisu

Hindberja tiramisu

Hindberja tiramisu

Hindberja tiramisu

Hindberja tiramisu

  • 125 g Lady Finger kexkökur
  • 500 g frosin hindber
  • 500 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
  • 360 g Arna grískt jógúrt með hindber og sítróna – suðræn sumarútgáfa (2 dollur)
  • 1 ½ dl flórsykur
  • 250 g fersk hindber
  • Börkur af 1 sítrónu

Aðferð:

  1. Setjið frosin hinber í pott og bræðið þau á vægum hita svo vökvinn gufi ekki upp. Kremjið hindberin í gegnum sigti til að ná öllum safanum úr þeim.
  2. Setjið safann af hindberjunum í fat og setjið allar Lady finger kexkökurnar í fatið og látið þær draga hindberjasafann í sig (látið standa á meðan þið gerið næstu skref).
  3. Þeytið rjómann
  4. Í stóra skál setjiði gríska jógúrtið og flórsykur, hrærið saman. Bætið þeytta rjómanum út í og veltið varlega saman við.
  5. Takið Lady finger kexkökurnar upp úr hindberjasafa skálinni, ef eitthvað er eftir af hiddberjasafanum (ætti að vera þykkasti hlutinn af safanum sem fer ekki inn í kexið) setjið hann þá út í rjómablönduna til að fá smá lit.
  6. Í 24 x 17 cm stórt form (eða sambærilega stórt form) raðið helmingnum af kexkökum í botninn og setjið helminginn af rjómablöndunni yfir. Raðið því næst það sem eftir er af kexkökunum yfir og setjið svo það sem eftir er af rjómablöndunni yfir þær.
  7. Raðið hindberjum yfir og rífið svolítið af sítrónuberki yfir.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Hindberja tiramisu

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5