Linda Ben

Hindberjasultu fylltar muffins

Recipe by
1 klst
| Servings: Unnið í samstarfi við ÍSAM

Hindberjasultu fylltar muffins sem eru alveg dásamlega góðar!

Krönsí toppur á djúsí möndlu muffins kökum sem eru fylltar með ljúffengri hindberjasultu sem gerir þær ennþá safaríkari og að algjörum bragð sprengjum.

 

Hindberjasultu fylltar muffins

Hindberjasultu fylltar muffins

Hindberjasultu fylltar muffins

Hindberjasultu fylltar muffins

Hindberjasultu fylltar muffins

Hindberjasultu fylltar muffins

Hindberjasultu fylltar muffins

  • 170 g sykur
  • 120 ml bragðlítil olía
  • 2 egg
  • 1 tsk möndludropar
  • Börkur af 1 sítrónu
  • 300 g hveiti
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 2 ½ dl mjólk
  • Hindberjasulta frá St. Dalfour

Toppur

  • 40 g hveiti
  • 30 g hafrar
  • 50 g púðursykur
  • 60 g mjúkt smjör

Aðferð:

Nákvæmt aðferðarmyndband er að finna á Instagram.com/lindaben í “Sultu muffins” highlights.

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 190ºC.
  2. Hærið saman sykur og olíu, bætið eggjunum út í, eitt í einu og hrærið á milli.
  3. Setjið mödludropana út í og rífið börkinn af sítrónunni smátt út í (aðeins taka gula hlutann af berkinum, ekki þann hvíta), hrærið saman.
  4. Í aðra skál blandið saman hveiti, matarsóda, lyftidufti og salti. Bætið helmingnum út á ásamt helmingnum af mjólkinni, hrærið saman, bætið svo út í restinni af hveitiblöndunni og mjólkinni, hrærið þar til allt hefur blandast saman.
  5. Setjið deigið í muffinsformin (ég notaði stór muffins form, en það er líka hægt að nota venjuleg en þá þarf að aðlaga bökunartímann) með því að setja fyrst botnfylli af deigi í formið, svo teskeið af hindberja sultu, setja deig yfir þannig það hylji sultuna, setja aftur teskeið af sultu og deig yfir það. Passið samt að fylla formin aðeins upp 2/3
  6. Í aðra skál blandið saman toppinum. Setjið hveiti, höfrum, púðursykri og smjöri, hrærið þar til allt hefur klístrast saman. Myljið topp deigið yfir muffinsið.
  7. Bakið inn í ofni í 20-30 mín (fer eftir hvort þið notið stór muffins form eða lítil), best er að kanna hvort kökurnar eru bakaðar í gegn með því að stinga hnífi í þær og ef hnífurinn kemur hreinn upp úr eru kökurnar bakaðar í gegn.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben svo ég sjái afraksturinn.

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5