Linda Ben

Hjúplakkrís og hindberja pavlova

Recipe by
2 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus | Servings: 8-10 manns

Hjúplakkrís og hindberja pavlova

Hjúplakkrís og hindberja pavlova

Hjúplakkrís og hindberja pavlova

Hjúplakkrís og hindberja pavlova

Hjúplakkrís pavlova

Hjúplakkrís og hindberja pavlova

Hjúplakkrís og hindberja pavlova

Hjúplakkrís og hindberja pavlova

Hjúplakkrís og hindberja pavlova

  • 3 eggjahvítur
  • 2 dl sykur
  • 1 tsk kornsterkja (maizenamjöl)
  • 1/8 tsk cream of tartar
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 tsk hvítvínsedik eða hvítt borðedik

Súkkulaði fylling

  • 300 ml rjómi
  • 285 g Hjúplakkrís frá Nóa Síríus
  • 100 g fersk hindber

Aðferð:

  1. Stillið ofninn á 120ºC, undir og yfir hita.
  2. Notið fullkomlega hreina hrærivéla skál, setjið eggjahvíturnar í skálina ásamt cream of tartar og notið þeytarann.
  3. Blandið kornsterkjunni út í sykurinn, hrærið saman.
  4. Þeytið eggjahvíturnar mjög rólega fyrst, setjið 1 msk af sykri út í eggjahvíturnar í einu á ca ½ mín fresti, aukið hraðann hægt og rólega eftir því sem þið setjið meiri sykur út í (þolinmæðisverk en þó þess virði).
  5. Blandið saman vanilludropum og edikinu, hellið blöndunni út í þegar eggjahvíturnar hafa náð stífum toppum og hrærið saman við í ½ mín lengur.
  6. Setjið smjörpappír á ofnplötu, hellið marengsnum á smjörpappírinn og mótið u.þ.b. 22 cm breiða köku.
  7. Bakið í 50-60 mín, slökkvið svo á ofninum en ekki opna ofninn. Látið kökuna kólna með ofninum. Takið út þegar ofninn hefur kólnað fullkomlega.
  8. Þeytið 300 ml rjóma þar til rjóminn er full þeyttur
  9. Saxið hjúplakkrísinn gróft niður og setjið hann svo ofan á kökuna ásamt hindberjum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Hjúplakkrís og hindberja pavlova

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5