Hlaðið túnfiskasalat með avókadó og jalapenó
Það þarf ekki að vera flókið að útbúa góða og próteinríka máltíð. Þetta hlaðna túnfiskasalat er bæði ferskt, bragðmikið og einstaklega mettandi 🥑✨
Ora túnfiskurinn passar fullkomlega með stökkum rauðlauk, sætum maís, rjómakenndu avókadói og örlitlu kikki frá fersku jalapenó. Harðsoðin egg gera salatið enn meira mettandi og mæjónesið bindur allt saman í silkimjúkt og ljúffengt salat.
Þetta er uppskrift sem hentar jafnt í hádegismat, léttan kvöldmat eða sem fylling á ristað súrdeigsbrauð, í samlokur eða vefjur. Fullkomin uppskrift þegar manni langar í eitthvað fljótlegt, næringarríkt og virkilega gott.


Hlaðið túnfiskasalat með avocadó og jalapenó
- 370 g (2 dósir) Ora túnfiskur í vatni
- 1 rauðlaukur
- 1-2 ferskir jalapenó (magn fer eftir hversu sterkt þú vilt að salatið sé)
- 200 g maískorn
- 1 avókadó
- 5 harðsoðin egg
- 2-4 matskeiðar mæjónes (magn fer eftir hversu blautt þú vilt hafa salatið, gott að byrja á minna og bæta svo við)
- Salt
- Sítrónupipar
Aðferð:
- Byrjið á því að harðsjóða eggin.
- Hellið vatninu af túnfiskinum og setjið í skál.
- Skerið rauðlaukinn og jalapenó mjög smátt niður og bætið í skálina ásamt maískorninu.
- Skerið avókadóið í bita og bætið í salatið.
- Skerið eggin niður og bætið í salatið.
- Setjið mæjónes í skálina ásamt salti og sítrónupipar, blandið öllu saman og smakkið til með meira af kryddum og mæjónesi.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar







