Þessar hollu súkkulaði muffins kökur eru alveg unaðslega góðar! Öllum óhollum hráefnum hefur hér verið skipt út fyrir hollari valkostinn. Ég mæli með að þið prófið þessar snilldar kökur!
Hollar súkkulaðibita muffins, uppskrift:
- 1 ½ Bolli hveiti
- 1 tsk matarsódi
- ¼ tsk salt
- 3 vel þroskaðir bananar
- ¼ bolli hunang
- 1 msk kókosolía
- 1 egg
- ½ bolli grískt jógúrt
- 1 msk möndlumjólk eða þá mjólk sem þú vilt
- ½ bolli súkkulaðibitar
Aðferð:
- Stillið ofninn á 175°C
- Blandið saman hveiti, matarsóda og salti.
- Stappið bananana og setjið út í hveiti blönduna ásamt hunangi, kókosolíu, eggi og grískri jógúrt.
- Setjið mjólk og súkkulaðibita út í deigið.
- Setjið muffinsform í muffins álbakka, ég mæli alltaf með því að nota bakka undir muffinsformin til þess að kökurnar haldi lögun í ofninum. Fyllið muffins formin af deigi upp ¾ formanna. Ekki yfirfylla formin því þá er hætta á að kökurnar leki yfir formið.
- Bakið í 20-25 mín eða þangað til kökurnar eru bakaðar í gegn.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu hana á Instagram með #lindulostæti
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: